Frí heimsending innanlands fyrir pantanir yfir 20.000 kr

Rut & Ransý

Við trúum því að það að lifa einföldu og meðvituðu lífi af heilindum veiti okkur gleði. Þetta er kjarninn í öllu sem við gerum í lífinu og viðskiptum. Það eru litlu hversdagslegu hlutirnir sem gleðja okkur, eins og góður svefn og að eiga innihaldsríkar samræður við vini. Vera til staðar fyrir einhvern og hafa morgunrútínu sem setur tóninn fyrir daginn og gefur þér gæðatíma með sjálfri þér. Að horfa á sólina setjast og finna vatnið undir iljunum þegar þú gengur meðfram ströndinni, hlusta á tónlist sem snertir kjarnann og upplifa árstíðaskiptin, allt stuðlar þetta að þessari gleði. Samvera með börnum og barnabörnum er líka ómetanleg. Ríkt og einfalt líf er ekki það sama fyrir alla, en það er líf fullt af einföldum daglegum hlutum. Ef við höfum ekki þessa upplifun, getur okkur skort velsæld og gleði. Okkar skuldbinding er að vera meðvitaðar um og lyfta upp litlu hlutunum í lífinu.

Hvernig þetta byrjaði allt saman

Um Sigurdóttur

Sigurdottir er hugmynd sem fædd er á Íslandi og varð að veruleika á Balí. Það endurspeglar draum okkar að veita viðskiptavinum okkar einhverja fallegustu hönnun sem Bali hefur upp á að bjóða. Það er líka tjáning á grunngildum okkar, einfaldleika, heilindum og gleði.

Samstarfið hófst með okkur stofnendum, Rut og Ransý, vinkonur til áratuga frá Reykjavík, og Ayu, saumakonunni okkar, sem framleiðir vörur okkar í höndunum á Balí.

Saman leggjum við mikinn metnað í Sigurdóttir vörurnar. Línan okkar inniheldur himneska kimonoa, kjóla og fylgihluti sem eru vandlega gerðir úr efnum frá Indonesíu. Þessi hönnun endurspeglar bæði balíska sköpunargáfu og norræna skynsemi, unnin af færum höndum Ayu í mjög takmörkuðu magni.

Hugmyndafræði okkar á rætur í hugtakinu „slow fashion,“ þar sem gæði, umhverfisáhrif og félagsleg velferð eru í fyrirrúmi bæði í hönnun og framleiðslu. Við höldum persónulegum tengslum við hvern einstakling sem tekur þátt í framleiðsluferlinu og tryggjum heiðarleika í öllum viðskiptum okkar.

Við trúum því að með því að taka eitt skref í einu munum við halda áfram að færast nær markmiðum okkar og hafa jákvæða áhrif á umhverfi okkar. Þakka þér fyrir að vera hluti af sögunni okkar og við vonum að þú munt njóta einstöku varanna okkar.

Með þakklæti og sköpunargleði, Rut og Ransý

INNbBLÁSIÐ AF ÍSLANDI OG BALI